Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 175/2026)

A kvartaði yfir því að Mosfellsbær hefði ekki brugðist við beiðnum um úrbætur og frágang á svæði sem liggur að lóð A.

Í svari Mosfellsbæjar við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að skorað hefði verið á A að ganga frá lóðarmörkum lóðar sinnar og honum tjáð að sveitarfélagið myndi ganga frá landræmu fyrir ofan lóð A að því loknu. Í ljósi svara sveitarfélagsins taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Hvað varðaði þann þátt kvörtunarinnar sem laut að frágangi á aðliggjandi lóð benti umboðsmaður á að A gæti leitað til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. júní 2026.