Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 129/2026)

A kvartaði yfir því að hafa ekki fengið svör frá Hafnarfjarðarbæ við fyrirspurnum.

Umboðsmaður tók fram að ágreiningur sem kann að koma upp á milli íbúa í fjöleignarhúsi væri einkaréttarlegur og félli utan starfssviðs umboðsmanns. Þá varð ekki annað ráðið en að Hafnarfjarðarbær hefði reynt að leiða málið sem um ræddi til lykta og meðal annars boðið A til fundar með starfsmönnum sveitarfélagsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. júní 2026.