A kvartaði yfir málsmeðferð úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sem staðfesti synjun embættis landlæknis um aðgang A að upplýsingum um einingaverð bóluefnisins Gardasil og mótefnisins Beyfortus. Byggði A einkum á því að brotið hefði verið gegn rétti hennar til að tjá sig um efni málsins þar sem umsögn seljanda bólu- og mótefnanna hefði lotið að afhendingu samninga seljanda við embætti landlæknis í heild en ekki eingöngu að verðupplýsingum.
Umboðsmaður taldi að réttur A til að nýta andmælarétt sinn í málinu hefði ekki verið takmarkaður af þeirri ástæðu að í umsögninni væri fjallað um þá afstöðu seljanda að samningarnir hefðu að geyma víðtækari upplýsingar um viðkvæm viðskiptaleyndarmál en einungis upplýsingar um verð. Þá yrði ekki séð að meðferð málsins hefði að öðru leyti verið í ósamræmi við lög.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. júní 2026.