A kvartaði yfir því að ekki hefði verið brugðist við erindi hans til fyrirtækjaskrár um skráningu á tilkynningu um breytt lögheimili félags.
Umboðsmaður taldi rétt að slíkt erindi væri ítrekað áður en leitað væri til umboðsmanns með kvörtun. Með þeim hætti væri stjórnvaldinu gefinn kostur á að bregðast við. Þar sem fyrir lá að slík ítrekun hafði ekki verið send taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka kvörtunina til meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. júní 2026.