Útlendingar. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 288/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu Útlendingastofnunar á umsókn um dvalarleyfi sem hafði verið lögð fram í janúar 2024.

Í svari stofnunarinnar kom fram að dvalarleyfisumsóknum hefði fjölgað mikið síðustu ár sem hefði lengt málsmeðferðartímann, en stofnunin myndi kappkosta að klára afgreiðslu umsóknarinnar á allra næstu dögum. Ekki varð annað ráðið en tafir á afgreiðslunni stöfuðu af almennum orsökum en væru ekki bundnar við þetta mál sérstaklega. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. júní 2026.