A kvartaði yfir úrskurði yfirskattanefndar þar sem kröfum hans um endurkoðun á álagningu opinberra gjalda vegna gjaldársins 2025 var hafnað. Þá vísaði nefndin öðrum kæruatriðum frá nefndinni, ýmist sökum þess að ekki lá fyrir ákvörðun eða úrskurður Skattsins vegna þeirra eða þau heyrðu ekki undir starfssvið nefndarinnar.
Eftir að hafa kynnt sér úrskurð nefndarinnar og þau gögn sem fylgdu kvörtuninni að öðru leyti taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka kvörtunina til frekari athugunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. júní 2026.