Póstþjónusta. Tolleftirlit. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 361/2026)

A kvartaði yfir afgreiðslu Íslandspósts ohf. vegna sendingar erlendis frá.

Umboðsmaður benti á að Íslandspóstur ohf. væri opinbert hlutafélag og teldist því einkaréttarlegur aðili. Í ljósi skyldna félagsins sem tollmiðlara kynni A að vera fært að beina athugasemdum sínum til tollyfirvalda, og eftir atvikum til fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. júní 2026.