Gistihúsa, veitinga- og tækifærisleyfi. Ársfrestur.

(Mál nr. 277/2026)

A kvartaði yfir bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar í tengslum við umsókn nánar tilgreinds aðila um tækifærisleyfi.

Þar sem ekki varð annað ráðið en að kvörtunin lyti að afgreiðslu máls sem hefði verið leitt til lykta utan þess ársfrests sem mælt er fyrir um í lögum um umboðsmann voru ekki skilyrði til að taka kvörtunina til nánari athugunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. júní 2026.