Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 373/2026)

A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir töfum atvinnuvegaráðuneytisins á kæru hans vegna ákvörðunar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að leggja á hann stjórnvaldssekt vegna brota gegn skilmálum heimagistingar.

Umboðsmaður taldi að enn hefði ekki orðið slíkur dráttur á afgreiðslu atvinnuvegaráðuneytisins á kæru A að tilefni væri til þess að beina fyrirspurn til ráðuneytisins um hvað liði meðferð og afgreiðslu þess.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. júní 2026.