A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem staðfesti ákvörðun ríkisskattstjóra um synjun um afhendingu upplýsinga um hlutafjáreign í fylgiskjölum ársreikninga nánar tilgreindra hlutafélaga. Þá kvartaði A jafnframt yfir synjun nefndarinnar á beiðni um endurupptöku málsins.
Umboðsmaður taldi ekki tilefni til að gera athugasemdir við það mat nefndarinnar að upplýsingarnar teldust ekki birtingarskyld gögn samkvæmt 4. mgr. 109. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga. Þá taldi umboðsmaður að nefndin hefði að öðru leyti lagt viðhlítandi mat á það í úrskurði sínum hvort upplýsingarnar féllu undir undanþáguákvæði 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Taldi hún því ekki efni til athugasemda við úrskurð nefndarinnar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. júní 2026.