30 nafngreindir menn kvörtuðu til umboðsmanns yfir því að embætti ríkislögreglustjóra hefði ekki brugðist við erindi í tilefni þess að ríkislögreglustjóri hefði vísað kæru þeirra frá.
Þær skýringar bárust frá ríkislögreglustjóra að brugðist yrði við og barst umboðsmanni afrit þeirra viðbragða. Þar sem kvörtunin laut að töfum og fyrir lá að brugðist hafði verið við taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni af henni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. júní 2026.