A kvartaði var yfir synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni um gjafsókn í tengslum við kröfu um greiðslu skaðabóta gagnvart íslenska ríkinu og Sjúkratryggingum vegna slyss sem A varð fyrir, en A hugðist til að byrja með ætla að afla matsgerðar dómkvaddra matsmanna.
Taldi umboðsmaður ekki ástæðu til þess að gera athugasemdir við þá afstöðu gjafsóknarnefndar sem birtist í umsögn hennar til ráðuneytisins að mæla ekki með gjafsókn á þeim grundvelli að ekki hefðu verið lögð fram gögn sem sýndu fram á að afleiðingar af slysi sem A lenti í væru aðrar og meiri en metnar hefði verið samkvæmt fyrirliggjandi matsgerð. Taldi umboðsmaður því að fullnægjandi grundvöllur hefði verið lagður að ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um synjun gjafsóknar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. júní 2026.