A kvartaði yfir ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja umsókn hans um örorkubætur og því að ákvörðun stofnunarinnar hefði ekki verið tilkynnt honum í tölvupósti. Þá kvartaði hann einnig almennt yfir stjórnsýslu, starfsfólki og vefsíðum stofnana á Íslandi.
Þar sem ákvörðunin Tryggingastofnunar hafði ekki verið borin undir úrskurðarnefnd velferðarmála voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að sá hluti kvörtunarinnar yrði tekinn til frekari athugunar. Hvað varðaði birtingu ákvörðunarinnar taldi umboðsmaður ekki tilefni til þess að gera athugasemd við hana. Loks taldi umboðsmaður að þar sem ekki varð séð að efni þess hluta kvörtunarinnar sem varðaði stjórnsýslu, starfsfólk og vefsíður stofnana á Íslandi varðaði hagsmuni A umfram aðra væru ekki uppfyllt skilyrði til að fjallað yrði um þann hluta kvörtunarinnar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. ágúst 2026.