A kvartaði yfir því að ekki hafi verið sett reglugerðarákvæði um magntakmarkanir við sölu áfengis á framleiðslustað.
Þar sem ekki varð séð að kvörtunin lyti að einstaklingsbundnum hagsmunum eða réttindum A umfram annarra taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til þess að erindi A yrði tekið til meðferðar á grundvelli kvörtunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. júlí 2026.