A kvartaði yfir töfum á svörum Heilbrigðiseftirlits X við erindi er varðaði loftræstikerfi veitingastaðar í nálægð við húsnæði A.
Með hliðsjón af þeim skýringum heilbrigðiseftirlitsins að erindinu hefði nú verið svarað, og þar sem fyrirhugað var að veita A frekari upplýsingar um málið á fundi sem boðað hafði verið til, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 17. ágúst 2026.