A kvartaði yfir töfum á sáttameðferð hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Með hliðsjón af skýringum sýslumanns og opinberum upplýsingum á vefsvæði embættisins taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu. Ekki yrði annað ráðið en að málið væri í farvegi innan embættisins, auk þess sem tafir á málsmeðferðinni væru almennar en ekki bundnar við mál A sérstaklega.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 17. ágúst 2026.