A leitaði til umboðsmanns Alþingis með kvörtun yfir synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni hans um að það legði honum til lögmann í tengslum við fjárnám sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Þá voru gerðar athugasemdir við að Héraðsdómur Reykjaness hefði ekki brugðist við beiðni A um afrit nánar greindra gagna.
Eftir að hafa kynnt sér samskipti A við dómsmálaráðuneytið taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemdir við afstöðu þess til beiðninnar, enda yrði sú skylda ekki lögð á ráðuneytið samkvæmt lögum að útvega borgurunum lögmannsaðstoð við aðstæður sem þessar. Þá vísaði umboðsmaður til þess að það félli utan starfssviðs hennar að fjalla um viðbrögð héraðsdóms við beiðni A um afhendingu gagnanna.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.