Kvartað var yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar um synjun örorkulífeyris og tengdar greiðslur á þeim grundvelli að endurhæfing teldist ekki fullreynd.
Athugun umboðsmanns á málinu benti ekki til þess að ályktanir sem úrskurðarnefnd velferðarmála hefði dregið af gögnum og upplýsingum sem lágu fyrir hefðu verið bersýnilega óforsvaranlegar, þar á meðal yrði ekki séð að upplýsingar í þeim læknisfræðilegum gögnum sem ekki var sérstaklega vikið að í úrskurðinum væru þess eðlis að ómálefnalegt hafi verið að leggja til grundvallar að endurhæfing gæti komið að gagni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.