Kvartað var yfir álagningu Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á stöðubrotsgjaldi.
Borgarlögmaður greindi umboðsmanni frá því að ákveðið hefði verið að afturkalla álagningu gjaldsins og endurgreiða það. Var því ekki tilefni fyrir umboðsmann til að aðhafast frekar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.