Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Leiðrétting.

(Mál nr. 213/2026)

A ehf. kvartaði yfir töfum á meðferð Reykjavíkurborgar á afgreiðslu erindis.

Í svari Reykjavíkurborgar í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns kom fram að búið væri að svara erindinu og staðfesti A móttöku svarsins í símtali við starfsmann umboðsmanns. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.