A ehf. kvartaði yfir töfum á meðferð Reykjavíkurborgar á afgreiðslu erindis.
Í svari Reykjavíkurborgar í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns kom fram að búið væri að svara erindinu og staðfesti A móttöku svarsins í símtali við starfsmann umboðsmanns. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. ágúst 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar fyrir hönd A ehf. sem beinist að Reykjavíkurborg og lýtur að töfum á meðferð borgarinnar á afgreiðslu máls sem lýtur að lóðarmörkum fasteignar í eigu félagsins.
Í tilefni af kvörtuninni var umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar ritað bréf 8. maí sl. þar sem þess var óskað að umboðsmanni yrðu veittar upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Í svari Reykjavíkurborgar 7. ágúst sl. sagði að unnið væri að afgreiðslu erindisins og að stefnt væri að því að ljúka meðferð þess um miðja vikuna eftir. Þá sagði að umboðsmanni yrðu veittar nánari upplýsingar um stöðu málsins eigi síðar en 12. ágúst. Borgin upplýsti 25. ágúst sl. að svar vegna málsins hefði verið sent í gegnum Ísland.is og staðfestir þú móttöku þess í símtali við starfsmann minn 31. ágúst.
Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu máls og þar sem það hefur nú verið afgreitt tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Með hliðsjón af framangreindu lýk ég meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.