Ef þú telur að ákvörðun stjórnvalds í máli þínu sé röng eða að málið hafi ekki verið meðhöndlað rétt, þá er hægt að kvarta til umboðsmanns Alþingis ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt.
Hafa þarf í huga að eftirlit umboðsmanns tekur til stjórnvalda en ekki einkaaðila nema þeim hafi verið fengið vald til að taka svonefndar stjórnvaldsákvarðanir. Eftirlit umboðsmanns tekur ekki heldur til dómstóla.
Nánari upplýsingar um hvað hafa þarf í huga áður en kvartað er.
Svona er hægt að senda umboðsmanni kvörtun:
- Kvarta rafrænt á island.is
- Eða fylla út eyðublað og senda það í tölvupósti eða bréfpósti. Einnig er hægt að afhenda eyðublaðið á skrifstofu umboðsmanns. Eyðublað fyrir þær kvartanir er hér fyrir neðan.
Eyðublöð
Kvörtun-PDF
Kvörtun-Word
Rafræn kvörtun
Ef kvartað er fyrir hönd annars þarf umboð:
Umboð-PDF
Umboð-Word