Ef þú telur að ákvörðun stjórnvalds í máli þínu sé röng eða að málið hafi ekki verið meðhöndlað rétt, þá er hægt að kvarta til umboðsmanns ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt.

Yfir hverju get ég kvartað?

  • Hægt er að kvarta yfir ákvörðunum og málsmeðferð stjórnvalda, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, sem varða beint þann sem kvartar.


Yfir hverju get ég ekki kvartað?

  • Ekki er hægt að kvarta yfir einkaaðilum nema í tilvikum þegar einkaaðila hefur verið fengið vald til að taka svonefndar stjórnvaldsákvarðanir.
  • Ekki er hægt að kvarta til umboðsmanns yfir störfum Alþingis og stofnana þess. Umboðsmaður skal þó tilkynna Alþingi um meinbugi á gildandi lögum ef þeir koma í ljós.
  • Ekki er hægt að kvarta til umboðsmanns yfir störfum dómstóla eða dómum og úrskurðum þeirra.
  • Umboðsmaður fjallar ekki um mál ef lög mæla beint fyrir um að þau heyri undir dómstóla eða að leita skuli leiðréttingar hjá dómstólum. Sem dæmi má nefna mál sem varða lögræði, þinglýsingar, lögbann, gjaldþrotaskipti og nauðungarsölu. Þá hefur umboðsmaður ekki heldur talið rétt að fjalla um mál sem eru þess eðlis að dómstólar þurfa að leysa úr ágreiningi, t.d. mál þar sem reynir á sönnun og greiðslu skaðabóta. 


Hvenær get ég kvartað?

  • Umboðsmaður fjallar almennt ekki um mál meðan það er til meðferðar í stjórnsýslunni.
    • Þó er hægt að kvarta yfir töfum á afgreiðslu máls. Þá þarf samt að vera búið að ítreka óskir um svör hjá viðkomandi stjórnvaldi. Stundum leiðir fyrirspurn um stöðu málsins til skjótrar lausnar.
    • Gefa þarf stjórnvaldi eðlilegan tíma til að bregðast við sem getur verið mismunandi eftir aðstæðum.
  • Ef hægt er að skjóta máli til æðra stjórnvalds þarf að gera það fyrst og fá niðurstöðu áður en umboðsmaður getur fjallað um málið. Til dæmis þarf að kæra ákvörðun til ráðuneytis eða sjálfstæðrar úrskurðarnefndar ef það er hægt. Leiðbeiningar um kæru ættu að fylgja ákvörðuninni.
  • Kvörtun þarf að berast innan 1 árs frá endanlegri afgreiðslu máls í stjórnsýslunni, t.d. úrskurði eða ákvörðun.


Hver getur kvartað?

  • Aðeins þeir sem eiga hlut að máli og eiga beinna hagsmuna að gæta geta kvartað til umboðsmanns. Þó geta allir sent umboðsmanni almennar ábendingar um mögulegar brotalamir í stjórnsýslunni.
  • Veita má öðrum umboð til að kvarta fyrir sig. Þá þarf skriflegt og vottað umboð að fylgja með kvörtun, sjá eyðublað fyrir umboð.


Hvernig kvarta ég?

  • Hægt er að kvarta rafrænt á island.is
  • Einnig er hægt að fylla út eyðublað og senda það í tölvupósti eða bréfpósti, eða afhenda það á skrifstofu umboðsmanns.
  • Kvörtun þarf að vera skýr og skilmerkileg. Öll nauðsynleg gögn þurfa að fylgja henni, einkum afrit ákvörðunar eða úrskurðar ef um slíkt er að ræða. Ekki er fullnægjandi að senda tengla á fylgiskjöl heldur þurfa skjölin sjálf að fylgja kvörtuninni.


Hvað gerist eftir að ég hef kvartað?


Kostar eitthvað að kvarta?

  • Nei, það er ókeypis að leita til umboðsmanns.