Utanríkismál. Borgaraþjónusta. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 462/2026)

Kvartað var yfir viðbrögðum borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins við erindi þar sem óskað hafði verið eftir aðstoð þjónustunnar.  

Í ljósi þess að ekki varð annað ráðið en að málið væri enn í vinnslu hjá ráðuneytinu og samskiptin enn að eiga sér stað taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast vegna málsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. september 2026.