Skattar og gjöld.

(Mál nr. 12013/2023)

Kvartað var yfir því að fyrirtækjaskrá Skattsins hefði ekki tekið afstöðu til beiðni félags um löggildingu slitanefndar þess. 

Í kjölfar eftirgrennslan umboðsmanns greindi ríkisskattstjóri frá því að skilanefnd félagsins hefði verið löggilt og félaginu yrði tilkynnt um þær lyktir. Ekki var því ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. janúar.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 18. janúar sl. fyrir hönd A hf. yfir því að fyrirtækjaskrá skattsins hafi enn ekki tekið afstöðu til beiðni félagsins um löggildingu slitanefndar þess.

Í tilefni af kvörtun yðar var ríkisskattstjóra ritað bréf 20. janúar sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu beiðninnar.

Svar ríkisskattstjóra barst 30. janúar sl. en þar kemur fram að með ákvörðun embættisins 25. janúar sl. hefði skilanefnd félagsins verið löggilt og mun félaginu hafa verið tilkynnt um þessar lyktir málsins með bréfi sama dag.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu framangreindrar beiðni og nú liggur fyrir að ríkisskattstjóri hefur afgreitt hana tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.