Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Vinnumarkaðsréttur. Ábyrgðarsjóður launa.

(Mál nr. 12149/2023)

Kvartað var yfir því að Ábyrgðarsjóður launa hefði ekki afgreitt kröfu vegna skaðabótakrafna sem lýst hefði verið í tiltekið þrotabú.  

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns var málið afgreitt með fullnaðaruppgjöri.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. maí 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 17. apríl sl., fyrir hönd A yfir því að Ábyrgðasjóður launa hafi enn ekki afgreitt kröfu yðar f.h. A á hendur sjóðnum vegna skaðabótakrafna sem lýst var í þrotabú X ehf.

Af þessu tilefni var Ábyrgðasjóði launa ritað bréfi 26. apríl sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Svar sjóðsins barst 23. maí sl. en þar kemur fram að afgreiðsla sjóðsins vegna tveggja skaðabótakrafna A hafi farið fram 10. maí sl. og að um fullnaðaruppgjör hafi verið að ræða.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu málsins og nú liggur fyrir að Ábyrgðasjóður launa hefur lokið meðferð þess tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.