Starfssvið umboðsmanns Alþingis og skilyrði þess að umboðsmaður fjalli um kvörtun. Einkaréttarlegt samningsatriði. Ágreiningur um fasteign. Réttarágreiningur.

(Mál nr. 469/1991)

Máli lokið með bréfi, dags. 24. júní 1991.

A leitaði álits varðandi ágreining á milli hans og B um fasteignina X. Fram kom að ágreiningur þessi hefði verið lagður fyrir dómstóla. Í bréfi mínu til A, dags. 24. júní 1991, benti ég A á að samkvæmt 2. gr. laga nr. 13/1987 um umboðsmann Alþingis tæki starfssvið umboðsmanns til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Í því fælist m.a. að ágreiningur eða deilur milli einstaklinga af því tagi, sem mál þetta lyti að, félli utan starfssvið umboðsmanns. Samkvæmt fyrrgreindu lagaákvæði, sbr. 4. tl. 3. gr. reglna nr. 82/1988 um störf og starfshætti umboðsmanns Alþingis, félli einnig utan starfssviðs umboðsmanns mál, sem dómstólar hefðu fjallað um eða væru til meðferðar hjá þeim. Brysti því skilyrði til þess, að ég gæti haft frekari afskipti af málinu.