Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 12444/2023)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu kærunefndar húsamála á máli.  

Fyrir lá að málið var í farvegi hjá nefndinni og hún hafði nýlega upplýst viðkomandi um framhald þess var ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. nóvember 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis 6. nóvember sl. sem þér beinið að kærunefnd húsamála og lýtur að töfum á afgreiðslu nefndarinnar á máli nr. [...].

Í upphafi skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi ekki afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þ.m.t. æðra stjórnvald, hafi lokið umfjöllun sinni um málið. Af því leiðir m.a. að almennt verður mál ekki tekið til með­ferðar af hálfu umboðsmanns á grundvelli kvörtunar fyrr en það hefur verið endanlega til lykta leitt í stjórnsýslunni.

Þegar umboðsmanni berast kvartanir vegna skorts á svörum og töfum á afgreiðslu mála og sá sem í hlut á hefur ítrekað erindi sitt hefur almennt, þrátt fyrir áðurnefnda reglu, verið farin sú leið, og þá með hliðsjón af fyrirliggjandi samskiptum viðkomandi við stjórnvaldið sem á í hlut, að spyrjast fyrir um hvað líði svörum við viðkomandi erindum, og eftir atvikum afgreiðslu mála. Þetta hefur ekki síst verið gert til þess að greiða fyrir því að borgararnir fái sem fyrst úrlausn sinna mála enda hefur reyndin í flestum tilvikum verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað hafi valdið töfunum og hvenær ráðgert er að afgreiða málið. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður þá athugun sinni á málinu.

Í máli yðar liggja fyrir samskipti sem farið hafa á milli yðar og kærunefndarinnar. Liggur fyrir að starfsmaður nefndarinnar tjáði yður með tölvubréfi 31. október sl. að nefndin sé með málið til vinnslu, næsti fundur nefndarinnar verði haldinn 29. nóvember nk. og gert sé ráð fyrir því að mál yðar verði þá á dagskrá. Þar sem fyrir liggur að mál yðar er í farvegi hjá kærunefndinni og hún hefur nýlega upplýst yður um framhald þess tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar að svo stöddu.

Með hliðsjón af framangreindu læt ég umfjöllun minni vegna kvörtunar yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég bendi yður hins vegar á, verði frekari tafir á afgreiðslu málsins, að þér getið leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.