Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Lögreglu- og sakamál.

(Mál nr. 12433/2023)

Kvartað var yfir töfum á rannsókn máls sem kært hafði verið til lögreglunnar. 

Í kjölfar eftirgrennslanar umboðsmanns greindi ríkissaksóknari frá því að erindi viðkomandi hefði verið svarað og óskað hefði verið eftir upplýsingum um stöðu málsins hjá lögreglunni. Ekki var því ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 29. nóvember 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 30. október sl., f.h. A, yfir töfum á rannsókn máls sem kært var til lögreglunnar 22. ágúst 2017.

Í tilefni af kvörtuninni var ríkissaksóknara ritað bréf 16. nóvember sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu á erindum yðar vegna tafa á framangreindu máli. Svar ríkissaksóknara barst 23. nóvember sl. en þar kemur fram að erindi yðar hafi verið svarað og að embættið hafi nú óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins hjá lögreglunni.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að skorti á viðbrögðum við erindum yðar og í ljósi þess að ríkissaksóknari hefur nú svarað yður tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.