Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Lögreglu- og sakamál.

(Mál nr. 12432/2023)

Kvartað var yfir töfum á rannsókn máls hjá héraðssaksóknara.

Í svari ríkissaksóknara til umboðsmanns kom fram að embættið hefði óskað eftir upplýsingum frá héraðssaksóknara um stöðu málsins og fyrirhugaða meðferð þess. Ekki var því ástæða að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. nóvember 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 29. október sl., f.h. A, yfir töfum á rannsókn máls hjá héraðssaksóknara.

Í tilefni af kvörtuninni var ríkissaksóknara ritað bréf 16. nóvember sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvort erindi yðar hefði borist embættinu og þá hvort ríkissaksóknari hefði í huga að bregðast við því sem fram kom í erindinu. Svar ríkissaksóknara barst 29. nóvember sl. en þar kemur fram að embættið hafi nú þegar sent héraðssaksóknara erindi, sem fylgir bréfi þessu hjálagt í ljósriti, og óskað eftir upplýsingum um stöðu málsins og fyrirhugaða meðferð þess.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum og skorti á viðbrögðum við erindum yðar og í ljósi þess að ríkissaksóknari hefur nú brugðist við tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.