Fjármála- og tryggingastarfsemi.

(Mál nr. 12564/2023)

Kvartað var yfir bönkum á Íslandi og að ekki sé hægt að millifæra án þess að upplýsingar um greiðanda, s.s. kennitala, komi fram.  

Þar sem starfssvið umboðsmanns tekur ekki til þessarar bankastarfsemi voru ekki skilyrði til að hann fjallaði um kvörtunina.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. janúar 2024.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 22. janúar sl. sem beinist að Landsbankanum, sem og öðrum bönkum á Íslandi, og lýtur að möguleikum yðar og annarra á því að framkvæma millifærslur til annarra aðila án þess að upplýsingar um greiðanda, s.s. kennitala, komi fram.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk hans að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Í 3. gr. sömu laga kemur fram að undir starfssvið umboðsmanns falli ríki og sveitarfélög en að það nái einnig til starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ástæða þess að yður er bent á þetta er að Landsbankinn hf. er hlutafélag og fjármálafyrirtæki sem starfar á grundvelli laga nr. 2/1995, um hlutafélög, og laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og telst því einkaréttarlegur aðili. Sem slíkur fellur hann að jafnaði utan starfssviðs umboðsmanns í samræmi við ofangreind ákvæði laga nr. 85/1997. Á þetta einnig við um aðra banka sem starfa hér á landi. Sú háttsemi sem kvörtun yðar beinist að felur ekki í sér stjórnsýslu í ofangreindum skilningi enda er ekki í henni fólgin beiting opinbers valds sem félaginu hefur verið fengið með lögum eða ákvörðunar­taka á þeim grundvelli. Það fellur því utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um þá starfsemi félagsins sem kvörtun yðar lýtur að.

Með vísan til framangreinds lýk ég umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.