A kvartaði yfir lögum um kílómetragjald.
Þar sem kvörtunin laut að lagasetningu Alþingis og þar sem ekki lá fyrir ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beindist sérstaklega að A eða varðaði beinlínis hagsmuni A eða réttindi umfram aðra, voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar. Umboðsmaður benti á að álagning kílómetragjalds væri kæranleg til ríkisskattstjóra og að kæra mætti úrskurð ríkisskattstjóra til yfirskattanefndar. Ekki væru skilyrði til að kvarta til umboðsmanns fyrr en málið hefði verið lagt í þann kærufarveg.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. janúar 2026.