Skipulags- og byggingarmál. Deiliskipulag

(Mál nr. 13044/2024)

Kvartað var yfir úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem hafnaði kröfu um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogsbæjar um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar. Í kvörtuninni voru ýmsar athugasemdir gerðar við efni og málsmeðferð deiliskipulagsbreytingarinnar og úrskurð nefndarinnar þar um.

Af hálfu umboðsmanns var tekið undir með úrskurðarnefndinni að betur hefði farið á að upphaflegt erindi landeiganda til Kópavogsbæjar hefði verið afgreitt með formlegum hætti þannig að strax í upphafi hefði legið fyrir í hvaða farveg gerð deiliskipulagsins hefði verið lögð. Að öðru leyti fékk umboðsmaður ekki annað séð af gögnum málsins en að deiliskipulagsbreytingin hefði verið unnin í samræmi við lög og reglur þar um og að ekki væri tilefni til að gera athugasemdir við úrskurð nefndarinnar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. janúar 2026.