Félagið A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir frávísun úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar á kæru félagsins. Með kærunni var þess krafist að tiltekið efni á vegum þjóðkirkjunnar og biskups Íslands yrði lýst ólögmætt sem og undirritun biskups á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Að teknu tilliti til ákvæða laga um þjóðkirkjuna og í ljósi stöðu kirkjunnar sem sjálfstæðs trúfélags varð ekki ráðið að kvörtunin beindist að ákvörðunum eða athöfnum sem teldust til þeirrar stjórnsýslu sem starfssvið umboðsmanns tæki til. Voru því ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. febrúar 2026.