Lögregla. Lyfjamál. Dómstólar. Ábending um að leita til dómstóla. Utan valdsviðs.

(Mál nr. 64/2026)

A og B kvörtuðu yfir því að ríkissaksóknari og lögreglustjórinn á X hefðu ekki aflétt haldlagningu muna í þeirra eigu en þau höfðu verið sýknuð í héraðsdómi. Þá töldu A og B að þau ættu rétt til þess að haldinu yrði aflétt þar sem ríkissaksóknari hefði ekki áfrýjað málinu til Landsréttar innan áfrýjunarfrests.

Umboðsmaður tók fram að sá hluti  kvörtunarinnar sem snéri að útgáfu áfrýjunarstefnu væri liður í meðferð dómstóls og ætti ekki undir starfssvið umboðsmanns. Þá tiltók umboðsmaður að önnur atriði kvörtunarinnar væru þess eðlis að til staðar væru bein lagafyrirmæli um málskot til dómstóla. Voru því ekki uppfyllt lagaskilyrði til þess að taka kvörtunina til frekari meðferðar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. febrúar 2026.