Umboðsmaður tók aðkomu Matvælastofnunar að málum er lúta að mögulegri slæmri meðferð dýra til athugunar að eigin frumkvæði í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um meðferð á svonefndum blóðmerum.
Með vísan til skýringa Matvælastofnunar til umboðsmanns og einkum þess að stofnunin hefur með höndum sérfræðilegt mat, sem umboðsmaður er almennt ekki í aðstöðu til að taka til endurskoðunar, ákvað umboðsmaður að láta athugun sinni lokið.
Umboðsmaður tók þó fram að eftir því, sem tilefni væri til, yrðu áfram hafðar gætur á stjórnsýslu á sviði dýravelferðar og atriði þar að lútandi eftir atvikum tekin til athugunar að nýju ef þörf væri á.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. febrúar 2025.