A kvartaði yfir atriðum er lutu að mögulegu vinnuslysi á tilgreindu hjúkrunarheimili og viðbrögðum vinnuveitanda hennar.
Þar sem vinnuveitandinn starfaði á einkaréttarlegum grunni féll utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. mars 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 22. mars sl. en hún beinist að hjúkrunarheimilinu X þar sem þú varst starfsmaður. Nánar tiltekið lýtur kvörtunin að viðbrögðum við atviki, sem af kvörtuninni verður ráðið að hafi verið vinnuslys, en meðal annars er fundið að tilkynningum til viðeigandi aðila svo og því að þér hafi ekki verið boðið léttara starf þrátt fyrir ráðleggingar læknis.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga auk starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Önnur starfsemi einkaaðila fellur hins vegar ekki undir starfssvið umboðsmanns eins og það er markað í lögum nr. 85/1997. Hjúkrunarheimilið X er rekið á einkaréttarlegum grundvelli. Starfsemi þess felur ekki í sér beitingu opinbers valds í framangreindri merkingu. Af þeim sökum fellur utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtun þína.
Í ljósi efnis kvörtunarinnar er rétt að vekja athygli þína á því að stéttarfélag þitt kann að geta veitt þér leiðbeiningar að því leyti, sem uppi kann að vera ágreiningur um réttindi þín gagnvart vinnuveitandanum. Þá má jafnframt geta þess að Vinnueftirlit ríkisins sér meðal annars um að haldin sé skrá yfir tíðni vinnuslysa eftir starfsgreinum, sbr. j.-lið 75. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og ber atvinnurekanda að tilkynna stofnuninni tiltekin vinnuslys, sbr. 1. mgr. 79. gr. sömu laga. Vinnueftirlitið annast eftirlit með því hvort tilkynningarskyldu um vinnuslys sé sinnt.
Með vísan til framangreinds og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 er umfjöllun minni um kvörtun þína lokið.