Börn. Tafir. Ársfrestur. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 127/2026)

A kvartaði einkum yfir málsmeðferð sýslumanns í málum er lutu að umgengni við barn hennar, þar með talið töfum. Af kvörtuninni varð jafnframt ráðið að hún lyti að málsmeðferð lögreglu og barnaverndar í málum, sem tengdust einnig barni hennar, á árunum 2012 til 2019.  

Að því er varðaði þau atvik, sem áttu sér stað á fyrrgreindu árabili, tók umboðsmaður fram að þau féllu utan þess ársfrests, sem mælt væri fyrir um í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í tilefni þess hluta kvörtunarinnar er laut að töfum við málsmeðferð sýslumanns var sýslumanni ritað bréf. Að teknu tilliti til skýringa sýslumanns taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar að þessu leyti. Að því marki, sem kvörtunin laut að einstökum atriðum í meðferð sýslumanns í málunum, tók umboðsmaður fram að almennt væri ekki gert ráð fyrir að umboðsmaður tæki mál til meðferðar fyrr en þau hefðu verið endanlega til lykta leidd innan stjórnsýslunnar.

    

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. mars 2026.

  

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 20. febrúar sl. en hún sýnist einkum beinast að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og málsmeðferð hans í tengslum við mál er lúta að umgengni við barn þitt. Skilja verður kvörtunina að þessu leyti á þá leið að hún beinist bæði að því að meðferð mála hjá sýslumanni hafi dregist óeðlilega en jafnframt að einstökum atriðum í málsmeðferðinni. Í kvörtuninni er þó jafnframt vikið að öðrum atriðum, sem einnig varða barn þitt, en þeim hluta hennar verður að teljast beint að barnaverndaryfirvöldum og lögreglu vegna málsmeðferðar þeirra á árunum 2012 til 2019.

Með vísan til þess hluta kvörtunarinnar, sem lýtur að málsmeðferð lögreglu og barnaverndar á fyrrgreindu árabili, skal tekið fram að í 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er fjallað um skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar. Meðal þeirra er skilyrði um að kvörtun skuli borin fram innan árs frá því er stjórnsýslugerningur sá, er um ræðir, var til lykta leiddur, sbr. 2. mgr. 6. gr. laganna. Þar sem aðkoma lögreglu og barnaverndar á árunum 2012 til 2019 fellur utan þessa ársfrests eru ekki uppfyllt skilyrði til að ég fjalli um þann þátt kvörtunarinnar.

Í tilefni þess hluta kvörtunarinnar, sem lýtur að töfum við málsmeðferð sýslumanns, var honum ritað bréf 19. mar sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði hvernig meðferð mála, er vörðuðu umgengni þína við barn þitt, miðaði. Í svari sýslumanns 25. mars sl. kemur fram að til meðferðar séu meðal annars tvær beiðnir þínar til sýslumanns. Annars vegar beiðni þín um álagningu dagsekta en um meðferð þeirrar beiðni segir í bréfinu að með bréfi sýslumanns 18. mars. sl. hefði foreldrum verið boðin sérfræðiráðgjöf og að næstu skref muni ráðast af afstöðu foreldra til þess boðs. Hins vegar sé um að ræða beiðni þína um ákvörðun um umgengni til bráðabirgða. Um meðferð þeirrar beiðni segir að 10. mars sl. hafi þess verið óskað að báðir foreldrar sendu embættinu skriflegar greinargerðir vegna beiðninnar fyrir 20. mars sl. Þess megi vænta að úrskurður verði kveðinn upp í málinu í aprílmánuði.

Að því marki, sem kvörtun þín lýtur að töfum, tel ég að svör sýslumanns til mín sýni fram á að unnið sé að meðferð þeirra með virkum hætti. Þannig hefur til að mynda verið óskað greinargerða og foreldrum boðin sérfræðiráðgjöf í þessum mánuði. Þessu til viðbótar liggja fyrir áætlanir sýslumanns um að úrskurðað verði í öðru málinu í aprílmánuði. Að teknu tilliti til þessa tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekari í tilefni kvörtunarinnar að því marki, sem hún lýtur að töfum.

Að því er varðar þær athugasemdir í kvörtun þinni, sem lúta að málsmeðferð sýslumanns í framangreindum málum, til dæmis varðandi viðtal við barn þitt, er rétt að taka fram að í 3. mgr. fyrrnefndrar 6. gr. laga nr. 85/1997 segir að ekki sé unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en það hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Af þessu ákvæði leiðir að almennt er ekki gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af málum fyrr en meðferð þeirra er lokið innan stjórnsýslunnar. Með vísan til þess eru ekki uppfyllt skilyrði til að fjallað verði um einstök atriði í málsmeðferð sýslumanns í máli, sem enn er til meðferðar hjá embætti hans.

Með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, læt ég meðferð minni á framangreindum kvörtunum hér með lokið.