Aðgangur að gögnum og upplýsingum. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða

(Mál nr. 168/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu ríkislögreglustjóra á beiðni um upplýsingar og gögn.

Í svari ríkislögreglustjóra kom fram að unnið hefði verið að meðferð málsins og að A hefði verið upplýstur um framgang þess. Með vísan til þessa taldi umboðsmaður ekki ástæðu til frekari athugunar á kvörtuninni. 

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. mars 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar þinnar 9. mars sl. sem lýtur að töfum á beiðni þinni til embættis ríkislögreglustjóra um afhendingu tiltekinna upplýsinga og gagna sem lúta að meðferð og rannsókn á [...]. Samkvæmt þeim gögnum sem fylgdu kvörtuninni beindir þú erindinu til embættis ríkislögreglustjóra 21. janúar sl. og ítrekaðir það 2. febrúar sl. Í svari embættisins sama dag kom fram að erindið væri móttekið og ítrekun hafi verið lögð í málið. Þá ítrekaðir þú erindi þitt að nýju 3. mars sl.

Í tilefni af kvörtun þinni var embætti ríkislögreglustjóra ritað bréf 20. mars sl. þar sem þess var óskað að ríkislögreglustjóri veitti umboðsmanni upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindis þíns.

Í svari ríkislögreglustjóra 30. mars sl. kemur fram að starfsmaður embættisins hafi verið í samskiptum við [...] vegna málsins en láðst hafi að upplýsa þig um þá vinnu sem þegar sé hafin. Hafi embættið beðist velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið við svörun málsins og skort á upplýsingum um framvindu þess og hvenær fyrirsjáanlegt sé að afgreiðslu þess verði lokið.

Samkvæmt framangreindu virðist vera í virkri vinnslu af hálfu ríkislögreglustjóra að bregðast við erindi þínu auk þess sem ráða má að ríkislögreglustjóri hafi nú svarað fyrirspurnum þínum um framgang málsins. Þar sem kvörtun þín lýtur að töfum og viðbragðaleysi af hálfu ríkislögreglustjóra tel ég því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun þinni að svo stöddu. Teljir þú síðar að meðferð embættisins á málinu dragist úr hófi, getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á málinu lokið með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.