Ársfrestur.

(Mál nr. 225/2026)

A kvartaði yfir málsmeðferð Persónuverndar á kvörtun sem A beindi til stofnunarinnar.

Þar sem þau atvik sem kvörtunin laut að áttu sér stað utan þess ársfrests sem mælt er fyrir um í lögum um umboðsmann Alþingis voru ekki uppfyllt skilyrði til að umboðsmaður tæki þau til nánari athugunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. apríl 2026.

   

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 30. mars sl. yfir málsmeðferð Persónuverndar á kvörtun sem þú beindir til stofnunarinnar 25. nóvember 2022 en athugun á henni lauk með tilkynningu til þín 19. desember 2023.  Í kvörtun til umboðsmanns kemur fram að þú hafir sent Persónuvernd erindi með tölvupósti en bréf stofnunarinnar til þín hafi verið send í bréfpósti og ekki ratað í þínar hendur. Telur þú að Persónuvernd hafi verið í lófa lagið að senda þér tölvupóst þegar ekki bárust svör við bréfum stofnunarinnar. 

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er það skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar af hálfu umboðsmanns að hún sé borin fram innan árs frá því að stjórnsýslugerningur sá, er um ræðir, var til lykta leiddur. Þar sem þau atvik sem kvörtun þín lýtur að áttu sér stað utan þess ársfrests sem mælt er fyrir í lögunum er mér ekki fært að taka kvörtunina til nánari athugunar og læt ég því athugun minni á henni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.