Fullnusta refsinga. OPCAT-eftirlit. Framkoma opinberra starfsmanna. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 240/2026)

Fangi kvartaði yfir framkomu starfsmanns fangelsis í sinn garð.

Þar sem ekki varð séð að leitað hefði verið fyrst til fangelsismálayfirvalda gat umboðsmaður ekki tekið kvörtunina til nánari umfjöllunar að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. apríl 2026.