A kvartaði yfir framkvæmd aðfarargerðar.
Í ljósi þess að starfssvið umboðsmanns tekur ekki til ákvarðana og annarra athafna stjórnvalda, þegar samkvæmt beinum lagafyrirmælum er ætlast til að menn leiti leiðréttingar með málskoti til dómstóla, taldi umboðsmaður sér ekki fært að taka kvörtunina til frekari athugunar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. apríl 2026.