Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Aðgangur að gögnum. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 258/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu Lyfjastofnunar á beiðni hennar um aðgang að nánar tilgreindum upplýsingum.

Með hliðsjón af samskiptum A við stofnunina vegna málsins, og í ljósi eðlis og umfangs beiðninnar, taldi umboðsmaður að enn hefði ekki orðið slíkur dráttur á afgreiðslu hennar að tilefni stæði til frekari athugunar á kvörtuninni að þessu leyti. Umboðsmaður vakti þó athygli á þeim möguleika að kæra tafir á afgreiðslu beiðninnar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. maí 2026.