A kvartaði yfir því að nýyrði sem hann sendi inn á nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar hefðu ekki verið sett inn á vefinn.
Þar sem ekki varð séð að efni kvörtunarinnar varðaði A umfram aðra taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að fjallað yrði um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. maí 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 19. maí sl. yfir því að nýyrðum þeim sem þú sendir inn á nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar, „dópréttindi” og „dópréttindasinni”, hafi verið hafnað. Telur þú þetta fela í sér ólögmæta mismunun og krefst þess meðal annars að nýyrðið „dópréttindi” verði fært inn á vefinn og í íslenska orðabók.
Í tilefni af framangreindu er rétt að taka fram að um störf umboðsmanns Alþingis gilda samnefnd lög nr. 85/1997. Hlutverk umboðsmanns er að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt, sem nánar greinir í lögunum, og að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins, sbr. 2. gr. laganna. Hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af hálfu stjórnvalds getur kvartað af því tilefni til umboðsmanns, sbr. 2. mgr. 4. gr. laganna. Það er því ekki hlutverk umboðsmanns að láta mönnum í té lögfræðilegar álitsgerðir eða svara almennum spurningum um tiltekin málefni eða réttarsvið heldur að fjalla um kvartanir yfir því að stjórnvöld hafi ekki farið að lögum eða fylgt vönduðum stjórnsýsluháttum með ákvörðunum sínum, athöfnum eða athafnaleysi. Þá verður kvörtun að lúta að tilteknum athöfnum eða ákvörðunum stjórnvalds, sem beinast að þeim er leggur kvörtun fram og varða beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra.
Enda þótt þú hafir lagt til nýyrði til birtingar á nýyrðavef Stofnunar Árna Magnússonar og þær tillögur hafi ekki orðið til þess að umrædd nýyrði yrðu birt liggur ekki fyrir í málinu tiltekin ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem varðar þína hagsmuni sérstaklega umfram hagsmuni annarra. Af þeim sökum er ekki fullnægt lagaskilyrðum til að kvörtun þín verði tekin til frekari meðferðar.
Með vísan til framangreinds lýk ég meðferð minni á máli þessu með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.