A kvartaði yfir töfum endurskoðendaráðs á afgreiðslu máls fyrir ráðinu.
Umboðsmaður taldi að ekki hefði enn orðið slíkur dráttur á meðferð málsins að tilefni væri til þess að beina fyrirspurn til ráðsins um hvað liði meðferð og afgreiðslu þess.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 26. apríl sl. sem lýtur einkum að töfum endurskoðendaráðs á afgreiðslu máls þíns hjá ráðinu. Samkvæmt kvörtuninni lagðir þú fram umsókn um [...] 23. mars sl. Afgreiðsla umsóknarinnar var ítrekuð með tölvupósti 24. apríl sl., en áður hafðir þú spurst fyrir um stöðu málsins og hvenær niðurstöðu væri að vænta í því, sbr. einkum tölvupósta frá 30. mars og 21. apríl sl.
Í tilefni af kvörtuninni er rétt að geta þess að almennt er ekki gert ráð fyrir því að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld hafa lokið umfjöllun sinni um það, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Þegar umboðsmanni berast kvartanir vegna tafa á afgreiðslu mála og fyrir liggur að mál hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma og sá sem í hlut á hefur ítrekað erindi sitt hefur, þrátt fyrir áðurnefnda reglu, verið farin sú leið að spyrjast fyrir um hjá stjórnvaldinu hvað líði afgreiðslu viðkomandi máls. Þetta hefur ekki síst verið gert til þess að greiða fyrir því að borgararnir fái sem fyrst úrlausn sinna mála enda hefur reyndin í flestum tilvikum verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað hafi valdið töfunum og hvenær ákvörðunar megi vænta í því. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður þá athugun sinni á málinu.
Samkvæmt málshraðareglu 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 ber stjórnvöldum að taka ákvarðanir í málum svo fljótt sem unnt er. Það hvort um óeðlilegan drátt geti verið að ræða á afgreiðslu máls af hálfu stjórnvalds er því byggt á mati hverju sinni þar sem meðal annars verður að líta til eðlis viðkomandi máls, efnis þess og umfangs, svo og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Ég tel að ekki hafi enn orðið slíkur dráttur á meðferð málsins að tilefni sé til að ég beini fyrirspurn til endurskoðendaráðs um hvað líði meðferð og afgreiðslu umsóknar þinnar frá 23. mars sl. Ég tek þó fram að þú getur leitað til umboðsmanns á nýjan leik með kvörtun verði óhæfilegar tafir á afgreiðslu umsóknarinnar.
Að framangreindu virtu lýk ég umfjöllun minni um kvörtunina, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.