Opinberir starfsmenn . Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 355/2026)

Félagið A kvartaði yfir ákvörðun Fjársýslu ríkisins um að krefja félagsmenn þess um endurgreiðslu ofgreiddra launa. Taldi félagið að málsmeðferð Fjársýslunnar hefði verið haldin verulegum annmörkum.

Umboðsmaður taldi, með vísan til eftirlitshlutverks fjármála- og efnahagsráðherra, rétt að athugasemdir félagsins yrðu fyrst bornar upp við ráðuneyti hans áður en kvörtun yrði lögð fram hjá umboðsmanni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. júní 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar A 29. maí sl. sem lýtur að ákvörðun Fjársýslu ríkisins um að krefja félagsmenn um endurgreiðslu ofgreiddra launa vegna mistaka Fjársýslunnar við útreikning á [...]. Telur félagið að málsmeðferð Fjársýslunnar hafi verið haldin verulegum annmörkum.

Með vísan til framangreinds skal tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en það hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Þetta ákvæði er einkum byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra, sem umboðsmaður Alþingis er, með kvörtun.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 1. mgr. 64. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál, er Fjársýsla ríkisins sérstök stofnun sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. q.-lið 2. tölul. 5. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Af kvörtuninni verður ekki ráðið að ákvörðun Fjársýslunnar hafi verið borin undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Í ljósi þess eftirlitshlutverks, sem fjármála- og efnahagsráðherra er falið með Fjársýslunni, og framanlýstra sjónarmiða að baki 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 tel ég rétt að félagið freisti þess að bera ákvörðun Fjársýslunnar undir ráðuneyti hans áður en leitað er til umboðsmanns með kvörtun af sama tilefni. Ef félagið telur sig órétti beitt að fenginni afstöðu ráðuneytisins, getur það leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.

Með vísan til þess, sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun félagsins lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.