Fæðingar- og foreldraorlof. Fæðingarorlofssjóður. Starfssvið umboðsmanns Alþingis. Utan valdsviðs.

(Mál nr. 367/2025)

A kvartaði yfir niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála þar sem nefndin staðfesti ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja umsókn A um lengingu fæðingarorlofs vegna öryggis og heilbrigðis á vinnustað.  

Í ljósi þess að starfssvið umboðsmanns tekur ekki til starfa dómstóla og að fjallað hafði verið um niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála og aðstæður á vinnustað A í dómi héraðsdóms voru ekki skilyrði til að umboðsmaður tæki kvörtunina til frekari meðferðar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. júní 2026.