A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu Sjúkratrygginga á umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu.
Með hliðsjón af skýringum Sjúkratrygginga, þar sem fram kom að til stæði að afgreiða umsóknina innan sex vikna, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 17. ágúst 2026.
Vísað er til kvörtunar A 24. apríl sl. sem beinist að Sjúkratryggingum og lýtur að töfum á afgreiðslu umsóknar um bætur vegna [...]. Í kvörtuninni kemur fram að umsóknin, sem lögð var fram 3. júní 2025, hafi enn ekki verið afgreidd þrátt fyrir ítrekanir þínar með tölvupósti þess efnis, nú síðast 13. apríl sl. Í svörum stofnunarinnar sama dag segir að málið hafi verið í yfirferð hjá lækni síðan í lok nóvember sl. og að nýlega hafi verið rekið á eftir afgreiðslu hans.
Í tilefni af kvörtuninni var Sjúkratryggingum ritað bréf 27. maí sl. þar sem þess var óskað að stofnunin léti umboðsmanni í té upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu umsóknarinnar, þ.m.t. hvenær niðurstöðu væri að vænta í málinu. Í hjálögðu svari Sjúkratrygginga 11. júní sl. er gangur málsins hjá stofnuninni rakinn, svo og samskipti stofnunarinnar við þig. Í svarinu kemur fram að málið hefði að lokinni gagnaöflun verið sent til yfirferðar hjá sérfræðilækni 25. nóvember 2025. Að fenginni niðurstöðu hans yrði málið tekið fyrir á fundi fagteymis í sjúklingatryggingu.
Þar sem ekki var tiltekið í bréfinu frá 11. júní sl. hvenær til stæði að ljúka afgreiðslu umsóknarinnar var Sjúktratryggingum á ný ritað bréf 29. júlí sl. þar sem áréttuð var sú ósk að greint yrði frá því hvenær niðurstöðu væri að vænta í máli A. Í hjálögðu svari Sjúkratrygginga 11. ágúst sl. kemur fram að áætlað sé að ákvörðun stofnunarinnar um bótaskyldu muni liggja fyrir innan sex vikna frá dagsetningu svarbréfsins.
Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu umsóknar og í ljósi svara Sjúkratrygginga um að áætlað sé að ljúka málinu innan sex vikna tel ég ekki tilefni til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu. Ef fyrirætlanir stofnunarinnar ganga ekki eftir getur A, eða þú fyrir hennar hönd, leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.
Með vísan til framangreinds lýk ég umfjöllun minni um kvörtunina, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.