Almannatryggingar. Sérfræðilegt mat. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 155/2025)

A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja umsókn hennar um örorkulífeyri þar sem hún hefði ekki náð tilskildum stigafjölda samkvæmt örorkustaðli.

Umboðsmaður benti á að mat Tryggingastofnunar, og eftir atvikum úrskurðarnefndar velferðarmála, á því hvort einstaklingur eigi rétt til örorkulífeyrisgreiðslna, feli í sér matskennda stjórnvaldsákvörðun sem meðal annars byggist á læknisfræðilegu mati. Þegar stjórnvöld taki slíkar ákvarðanir hafi þau ákveðið svigrúm að gættum skráðum og óskráðum reglum stjórnsýsluréttarins auk þeirra sérlaga sem gildi um viðkomandi málaflokk.

Umboðsmaður taldi ekki unnt að fullyrða að örorkumatið hefði brotið í bága við lög og reglur sem um það gilda eða að þær ályktanir sem úrskurðarnefndin dró af þeim gögnum og upplýsingum sem lágu fyrir í málinu hafi verið bersýnilega óforsvaranlegar. Taldi umboðsmaður því ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu nefndarinnar í máli A.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. ágúst 2026.