Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 412/2026)

A og B kvörtuðu yfir málsmeðferð Samgöngustofu í máli þeirra.

Umboðsmaður taldi, með vísan til eftirlitshlutverks innviðaráðherra, rétt að athugasemdir A og B yrðu fyrst bornar upp við ráðuneyti hans áður en kvörtun yrði lögð fram hjá umboðsmanni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. júlí 2026.

   

  

Vísað er til kvörtunar ykkar 30. júní sl. sem beinist að Samgöngustofu og lýtur að töfum á afgreiðslu máls ykkar, en málið varðar kröfu um skaðabætur vegna truflunar á flugi. Samkvæmt kvörtuninni var erindi ykkar sent samgöngustofu í nóvembermánuði 2025.

Með tölvupósti 1. júlí sl. upplýstuð þið að málið hefði verið afgreitt og Samgöngustofa hefði komist að þeirri niðurstöðu að þið ættuð rétt á bótum. Þrátt fyrir það vilduð þið halda kvörtuninni til streitu og vísuðuð til þess að Samgöngustofa hefði ítrekað ekki staðið við áætlanir sínar um að afgreiða málið og hefði látið hjá líða að svara tölvupóstum ykkar.

Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en það hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Þetta ákvæði er byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra, líkt og umboðsmanns Alþingis, með kvörtun. Í samræmi við þetta sjónarmið hefur umboðsmaður almennt talið rétt að það æðra stjórnvald, sem fer með yfirstjórnar- og eftirlitsheimildir á viðkomandi sviði, hafi fengið tækifæri til að fjalla um mál og þar með beita þeim heimildum áður en umboðsmaður tekur mál til athugunar á grundvelli kvörtunar og þá einnig í þeim tilvikum þar sem afstaða þess til málsins verður ekki fengin fram á grundvelli stjórnsýslukæru.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að af kvörtun ykkar verður ekki ráðið að athugasemdir ykkar við málsmeðferð Samgöngustofu hafi verið bornar undir innviðaráðuneytið en það fer samkvæmt s-lið 2. töluliðar 1. mgr. 7. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, með málefni Samgöngustofu. Þá segir í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 119/2012, um Samgöngustofu, að Samgöngustofa sé sérstök ríkisstofnun sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra. Í ljósi þess eftirlitshlutverks sem innviðaráðherra hefur gagnvart stofnuninni á grundvelli yfirstjórnar- og eftirlitsheimilda sinna og með vísan til framanlýstra sjónarmiða að baki 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 tel ég rétt að þið freistið þess að bera athugasemdir ykkar við stjórnsýslu Samgöngustofu undir innviðaráðuneytið áður en þið leitið til umboðsmanns Alþingis með kvörtun af sama tilefni. Ef þið teljið ykkur órétti beitt að fenginni afstöðu ráðuneytisins, getið þið leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi og verður þá tekin afstaða til þess hvort og að hvaða marki skilyrði séu að lögum til að taka málið til frekari athugunar.

Með vísan til þess sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun þinni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.